Bækur og rit

Ljósmyndarar á Íslandi 1845-1945

  • 2001 - Inga Lára Baldvinsdóttir

Inga Lára Baldvinsdóttir

Í þessu viðamikla verki leiðir höfundur lesendur gegnum fyrstu öld ljósmyndunar á Íslandi af mikilli þekkingu. Saga ljósmyndunar í öllum sínum margbreytileika er sögð frá frumskeiði hennar um miðja 19. öld og fram til stríðsloka. 

Til hagræðis fyrir erlenda lesendur hefur þessi bókarhluti verið þýddur á ensku. Í sérstöku ljósmyndaratali er gefin mynd af öllum sjálfstætt starfandi ljósmyndurum á tímabilinu og birt vandað sýnishorn ljósmynda eftir hvern og einn þeirra.

Bókina prýða hátt á fimmta hundrað ljósmyndir sem sýna þróun ljósmyndunar og veita jafnframt fágæta sýn á þjóðina, sögu hennar og menningu. Allar myndir ljósmyndaranna eru birtar óbreyttar og í upprunalegum lit og margar þeirra hafa ekki áður birst á prenti.

Bókin er skrifuð af okkar helsta sérfræðingi í ljósmyndasögu, Ingu Láru Baldvinsdóttur, safnverði  Þjóðminjasafns Íslands.