Bækur og rit
  • Ljósmyndari Mývetninga

Ljósmyndari Mývetninga

  • 2011 - Bárður Sigurðsson

Bárður Sigurðsson

 Mannlífsljósmyndir Bárðar Sigurðssonar frá upphafi 20. aldar

Í tengslum við sýninguna Ljósmyndari Mývetninga - Mannlífsljósmyndir Bárðar Sigurðssonar frá upphafi 20. aldar gaf Þjóðminjasafn Íslands út vandaða bók með sama nafni. Í bókinni eru þrjár greinar um Bárð og fjöldi ljósmynda eftir hann.

Bókin hefur að geyma þrjár stuttar greinar um Bárð Sigurðsson (1872-1937) og ljósmyndun hans eftir Hörð Geirsson safnvörð við Minjasafnið á Akureyri, Ingu Láru Baldvinsdóttur fagstjóra við Ljósmyndasafn Íslands í Þjóðminjasafni og Sigrúnu Kristjánsdóttur forstöðumann Menningarstofnunar Þingeyinga.  Margréti Hallgrímsdóttir þjóðminjavörður ritar formála. Ritstjóri er Inga Lára Baldvinsdóttir.

Í bókinni er birt úrval ljósmynda eftir Bárð, en slíkt úrval hefur ekki verið gefið út áður.