Fyrirlestrar

Fyrirlestur: Hvað er merkilegt við Íslandsmyndir Pike Ward?

  • 1.10.2019 kl. 12 Fyrirlestrasalur Þjóðminjasafns Íslands

Þriðjudaginn 1. október flytur Inga Lára Baldvinsdóttir sviðstjóri Ljósmyndasafns Íslands í Þjóðminjasafni erindi í fyrirlestrasal Þjóðminjasafns Íslands. Fyrirlesturinn hefst kl. 12 og er öllum opinn.

Englendingurinn Pike Ward var kunnur maður á Íslandi um aldamótin 1900. Hann gerði út frá Hafnarfirði en ferðaðist einnig um landið og keypti fisk til útflutnings. Hann kenndi Íslendingum að nýta minni fisk og staðgreiddi með peningum sem var nýlunda hér á landi. Ward var áhugaljósmyndari og tók myndir af daglegu lífi og frá fáförnum slóðum áður en Íslendingar hófu að taka myndir af áhugamennsku. Í því felst sérstaða mynda hans. Ward myndaði strax í sinni fyrstu heimsókn til Íslands árið 1893. Þá var ein ljósmyndastofa rekin í Reykjavík og engir Íslendingar farnir að taka myndir í áhugamennsku.

Brugðið verður upp myndum úr safni Ward bæði þeim sem eru til á sýningunni Með Ísland í farteskinu en líka öðrum myndum úr hans safni.