Fréttir

Prýðileg reiðtygi

15.2.2018

Knapar lögðu upp úr því að reiðtygi væru skrautleg og til prýði. Skreyttur söðull með viðeigandi búnaði var verðmæt eign. Á fyrri öldum sátu konur í kvensöðli með báða fætur öðrum megin; þær riðu kvenveg. Karlar riðu klofvega í sínum söðli. 

 Á sýningunni Prýðileg reiðtygi er úrval skreyttra söðla, söðulreiða og söðuláklæða úr safneign Þjóðminjasafns Íslands. Í tengslum við sýninguna kemur út samnefnt rit þar sem fjallað er um söðla og það handverk sem notað var til að prýða þá. Í greinum ritsins er rýnt í drifið látún þar sem birtast blómstrandi jurtir og framandi dýralíf í heillandi myndum. Séríslensk glituð söðuláklæði eru einnig til vitnis um listfengi þeirra sem sköpuðu þessa ríkulegu arfleifð. Greinahöfundar eru Ingunn Jónsdóttir, Ragnheiður Björk Þórsdóttir og Sigríður Sigurðardóttir. Ritstjóri er Anna Lísa Rúnarsdóttir. Sýningarhöfundur er Lilja Árnadóttir.