Fréttir

Breyting á reglugerð – söfn mega taka á móti helmingi gestafjölda

27.4.2021

Ný reglugerð um samkomutakmarkanir heimilar söfnum að taka á móti helming af hámarksfjölda móttökugetu hvers safns. 

Nú er söfnum heimilt að taka á móti helmingi af hámarksfjölda móttökugetu hvers safns og skulu gestir skráðir með nafni, kennitölu og símanúmer.

Að öðru leyti er vísað í fyrri reglugerð, nr. 404/2021

Reglugerð 427/2021: https://www.stjornartidindi.is/Advert.aspx?RecordID=178e1eda-5f7c-4460-9b2b-5ea48db0e8cd

Fjöldatakmarkanir eiga ekki við um börn fædd 2015 og síðar. Grímuskylda og tveggja metra reglan er í gildi á safninu fyrir einstaklinga fædda 2005 og fyrr.

Takmörkun á samkomum tók gildi 15. apríl 2021 og gildir til og með 5. maí 2021.