Fréttir
Forseti nýrra tíma á sýningu í Þjóðminjasafninu
"Vigdís er sterk fyrirmynd heilu kynslóðanna og sem forseti var hún brautryðjandi nýrra viðhorfa. Tengdi fortíð, líðandi stund og framtíðina í athöfnum sínum og ávörpum, sem gjarnan fjölluðu um menningu, mannlíf og náttúru. Þau efni eru leiðarstef svo margs í dag og að því leyti var Vigdís brautryðjandi og á undan sinni samtíð. Þjóðleg og heimsborgari í senn,“ segir Margrét Hallgrímsdóttir þjóðminjavörður í viðtali við Morgunblaðið.
Á Torginu í Þjóðminjasafni má nú sjá ljósmyndasýninguna Vigdís, forseti nýrra tíma sem er tileinkuð Vigdísi Finnbogadóttur fyrrum forseta. Grein um sýninguna birtist í Morgunblaðinu 14.05.2020.