Fréttir

Hvað er í matinn? Sjálfbært, heilsusamlegt mataræði

Ný spurningaskrá frá þjóðháttasafni Þjóðminjasafns Íslands

6.1.2022

Í tilefni af Veganúar 2022 sendir Þjóðminjasafn Íslands í samstarfi við Háskóla Íslands út spurningaskrá sem ber heitið Hvað er í matinn? Sjálfbært, heilsusamlegt mataræði

Spurningaskránni er ætlað að safna upplýsingum um upplifun og sjónarhorn fólks sem hefur tileinkað sér sjálfbært, heilsusamlegt mataræði á Íslandi. Þar er t.d. átt við grænkera (vegan), grænmetisætur, vistkera (flexitarian), neytendur lífrænt ræktaðra matvæla og annað fólk sem sem borðar meðvitað með tilliti til umhverfisins, dýraverndar eða eigin heilsu.

Spurningaskráin er hluti af rannsóknarverkefninu „Sjálfbært heilsusamlegt mataræði: vísindi sem vegvísir í átt að sjálfbærri framtíð“. Verkefnið leiðir saman vísindamenn af ólíkum sviðum til að skoða mismunandi mataræði, með áherslu á kolefnisspor Íslendinga. Markmiðið er að auka við þekkingu sem auðveldar stefnumótandi aðilum að taka ákvarðanir um hvernig standa skuli að breytingu í átt að sjálfbæru, heilsusamlegu mataræði og vistvænni matvælaframleiðslu á Íslandi.

Því er nú leitað til þeirra sem hafa þegar tileinkað sér slíkt mataræði í sínu daglega lífi til að draga lærdóm af reynslu þeirra. Hvað fær fólk til að snúa sér að slíku mataræði og hvað er gert til að halda sig við það? Hvaða viðhorf liggja þar að baki? Hverjar eru helstu áskoranirnar?

Þrír heppnir þátttakendur sem skila fullnægjandi svörum við spurningaskránni fyrir 31. mars 2022 verða dregnir út og hljóta 10 vikna grænmetisáskrift sumarið 2022 frá vistvænu gróðrarstöðinni Flight Song Farm í Reykjalundi, Grímsnesi.

Skráin er aðgengileg á íslensku og ensku