Fréttir

Opnun Stofu 17. júní

24.6.2019

Á þjóðhátíðardaginn 17. júní opnaði Lilja Dögg Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, barna og fjölskyldurýmið Stofuna. Stofa er nýtt rými fyrir börn og fjölskyldur, skólahópa og alla forvitna gesti.

Í tilefni 75 ára afmælis lýðveldisins 17. júní bauð Þjóðminjasafn Íslands til opnunar Stofu. Stofa er nýtt rými fyrir börn og fjölskyldur, skólahópa og alla forvitna gesti. Hún breytist eftir þörfum úr setustofu í rannsóknarstofu eða kennslustofu. 

Í skápum og skúffum Stofunnar eru gripaheildir úr geymslum safnsins. Gripirnir vekja margar spurningar. Til hvers voru þeir notaðir? Hvað tengir þá eða aðgreinir? Er vitað hver átti þá? Má lesa gerðfræðilega þróun gripanna úr heildunum? Hægt er að nota snjallsíma til að fræðast um gripina.

Innst í rýminu er bæjarhóll. Hóllinn er setbekkur sem breytist eftir þörfum í knörr landnámsfólksins, baðstofu torfbæjarins eða útsýnispall yfir fortíð og framtíð. Þar má láta vel um sig fara, finna lesefni við hæfi, leika sér og spila.

Verkefnið Menntun barna í söfnum hlaut nýverið styrk úr Barnamenningarsjóði. Í Þjóðminjasafni er Stofa miðpunktur verkefnisins. Í Stofu er sköpuð nýstárleg aðstaða fyrir börn og aðra gesti. Safnkosturinn skapar kjarnann en áhugaverðar persónur, fróðleikur, leikir, snertigripir og fleira varpa áhugaverðu ljósi á hann. Menntun barna í söfnum er samstarfsverkefni Þjóðminjasafns Íslands og Listasafns Íslands. Markmið verkefnisins er að auka þátttöku barna í menningarstarfi á söfnunum. Það er gert með því að byggja upp nýstárlega aðstöðu og heildræna hugsun sem opna aðgengi og eflir menningarlæsi.