Fréttir

Sumardagurinn fyrsti

11.4.2017

Á sumardaginn fyrsta verður fjölskyldudagskrá í Þjóðminjasafni Íslands á Suðurgötu og í Safnahúsinu við Hverfisgötu. 

Opið frá kl. 10:00-17:00. Ókeypis aðgangur og allir velkomnir.

Þjóðminjasafn Íslands á Suðurgötu 

>14:00-14:45 Þjóðlagasveitin Þula í Myndasal á 1. hæð. 
Þjóðlagasveitin Þula er skipuð tónlistarnemendum úr Tónlistarskóla Kópavogs á aldrinum 15 til 17 ára. Þau leika íslenska þjóðlagatónlist þar sem gleðin ræður ríkjum og koma fram á íslenskum 19. aldar þjóðbúningum.

>10:00-17:00 Ratleikur
Í tengslum við tónleika Þjóðlagasveitarinnar Þulu er boðið upp á skoðunarferð á eigin vegum um dýrin í þjóðlögunum. Ferðin leiðir gesti í gegnum safnið og við sögu koma útskornir gripir, hestsbein í kumli, hördúkur og fleira. Fræðandi og skemmtileg samvera fyrir börn og fullorðna. Ratleikurinn er afhentur í móttöku safnsins á 1. hæð. 

Safnahúsið við Hverfisgötu

>14:00-14:45 Fjölskylduleiðsögn
Sérfræðingur Þjóðminjasafnsins mun leiða gesti um sýninguna Sjónarhorn - ferðalag um íslenskan myndheim. Sérstök áhersla verður á dýrin í sýningunni, þar á meðal uppstoppaðan geirfugl og ljósmyndir af líffærum og innyflum síðustu tveggja geirfuglanna. Ekki missa af einstöku tækifæri fyrir fjölskylduna að upplifa og rýna í íslenska menningu og myndlist. 

>15:00-15:30 Karlakórinn Gamlir Fóstbræður
Karlakórinn Gamlir Fóstbræður flytur nokkur lög af fjölbreyttri efnisskrá sem inniheldur að mestu þekkt karlakórslög. Stjórnandi kórsins er Árni Harðarson.

>16:00-17:00 Af hverju Flateyri?
Sæbjörg Freyja Gísladóttir Þjóðfræðingur flytur erindið Af hverju Flateyri? Fyrirlesturinn er haldinn á vegum Félags þjóðfræðinga í samstarfi við Þjóðminjasafn Íslands og byggir á meistararitgerð Sæbjargar Freyju: „Er það hafið eða fjöllin? Um Flateyri og fólkið þar“.