Fréttir

Þjóðháttasöfnun um héraðsskóla og aðra heimavistarskóla til sveita

2.11.2017

Þjóðminjasafn Íslands mun á næstunni senda út spurningaskrá um héraðsskóla og aðra heimavistarskóla til sveita á unglingastigi, en fyrirhugað er að safna upplýsingum um daglegt líf og athafnir í þessum skólum. Söfnunin byggir eingöngu á frásögnum fyrrverandi nemenda og er því fyrst og fremst verið leita eftir minningum fólks.

Spurningaskráin er hluti af þjóðháttasöfnun Þjóðminjasafns Íslands sem staðið hefur óslitið síðan 1960. Spurt er um hefðir, félagslíf, ýmisleg samskipti við aðra nemendur og starfsfólk skólans, kennslu, nám, frístundir, tengsl við fjölskyldu og heimili o.fl.

Þjóðminjasafnið leitar eftir heimildarmönnum sem vilja svara þessari spurningaskrá, bæði úr héraðsskólum og síðast en ekki síst úr öðrum heimavistarskólum. Þeir sem taka vilja þátt eru vinsamlegast beðnir um að senda netfang sitt á agust@thjodminjasafn.is. Farið verður með netföngin sem trúnaðarmál.

Afrakstur söfnunarinnar verður gerður öllum aðgengilegur í menningarsögulega gagnagrunninum Sarpi eða sarpur.is.

Héraðsskólar voru formlega stofnaðir 1929 en var seinna breytt í gagnfræðaskóla og störfuðu þeir áfram sem slíkir fram undir aldamótin 2000. Flestir aðrir sveitaskólar með heimavist tóku til starfa á síðari hluta 20. aldar.   

Héraðsskóli

Myndin sýnir Héraðsskólann á Laugarvatni um 1920-1940 (Þjóðminjasafn Íslands).