Fréttir

Vorfundur Þjóðminjasafns Íslands

Ljósmyndir og varðveisla þeirra

24.4.2018

Í dag 24. apríl 2018 var haldinn árlegur vorfundur Þjóðminjasafns Íslands. Fundurinn fór fram í fyrirlestrasal safnsins á Suðurgötu kl. 10-15. Þema fundarins voru ljósmyndir og varðveisla þeirra. 

Sérstakur gestafyrirlesari fundarins var Elizabeth Edwards mannfræðingur. Hún nefndi fyrirlestur sinn Photography in the Museum Ecosystem. Elizabeth starfar nú sem gestaprófessor við rannsóknarstofnun Victoria and Albert Museum í London en á að baki fjölbreyttan feril tengdan ljósmyndun og rannsóknum á þeim. Hún var safnvörður ljósmynda og lektor við Pitt Rivers Museum/University of Oxford en sneri sér síðan alfarið að fræðilegum störfum.

Aðrir fyrirlesarar voru: Eiríkur Þorláksson sérfræðingur Mennta- og menningarmálaráðuneyti, Hrefna Róbertsdóttir sagnfræðingur, Hörður Geirsson safnvörður, Kristín Halla Baldvinsdóttir safnafræðingur, Linda Ásdísardóttir safnafræðingur, Sigrún Jóhannsdóttir lögfræðingur, og Vala Gunnarsdóttir fagstjóri Sarps.  

Dagskrá vorfundar Þjóðminjasafns Íslands

10:00  Margrét Hallgrímsdóttir býður gesti velkomna

10:05  Elizabeth Edwards - Photography in the Museum Ecosystem

11:05  Linda Ásdísardóttir – Heimildaljósmyndari – samtímaljósmyndari. Ljósmyndin sem hluti af safnastarfi

11:30   Hörður Geirsson – Rannsókn á myndum frá tíma votplötunnar í íslenskum söfnum

12:00-13:00  Hádegishlé

13:00  Eiríkur Þorláksson – Kveðja frá Mennta- og menningarmálaráðuneyti

13:15  Hrefna Róbertsdóttir- Ljósmyndir sem gripir og ljósmyndir sem skjöl. Er munur á meðhöndlun aðfanga

13:30  Vala Gunnarsdóttir – Ljósmyndir í Sarpi – Botninn á ísjakanum

13:50  Kristín Halla Baldvinsdóttir – Þurfum við að geyma þetta allt? Stýring á magni aðfanga inn í ljósmyndasöfn með grisjun og samstarf í huga

14:10  Sigrún Jóhannsdóttir – Birting ljósmynda af fólki – hvað má og hvað ekki?

Í lok fundar var boðið upp á kaffi í myndasal Þjóðminjasafns, þar sem fundargestir gátu haldið umræðum áfram.