Þjóðminjasafn Íslands

Valmynd


Þú ert hér Forsíða - Sýningar & viðburðir - Aðrar sýningar - Gripur mánaðarins

Gripur mánaðarins

  • 2021

    september, júlí, júní, maí, apríl, mars, febrúar, janúar

  • 2020

    desember, nóvember, október, september, ágúst, júlí, júní, maí, apríl, mars, febrúar, janúar

  • 2019

    desember, nóvember, október, september, ágúst, júlí, júní, maí, apríl, mars, febrúar, janúar

  • 2018

    desember, nóvember, október, september, ágúst, júlí, júní, maí, apríl, mars, febrúar, janúar

  • 2017

    desember, nóvember, október, september, ágúst, júlí, júní, maí, apríl, mars, febrúar, janúar

  • 2016

    desember, nóvember, október, september, ágúst, júlí, júní, maí, apríl, febrúar, janúar

  • 2015

    desember, nóvember, október, september, ágúst, júlí, júní, maí, apríl, mars, janúar

  • 2014

    desember, nóvember, október, september, ágúst, júlí, júní, maí, apríl, mars, febrúar, janúar


Gripur mánaðarins
  • Næsta færsla
  • Fyrri færsla

Dagleg störf ársins hring

Júlí 2015

1.7.2015

Gripur mánaðarins er myndablað eða nokkurs konar almanak sem sýnir helstu störf fólks til sveita á síðari hluta 19. aldar. Myndirnar eru teiknaðar á pappír og síðan málaðar, en samtals eru myndfletirnir 48 eða fjórir fyrir hvern mánuð. Almanakið er staðsett í Safnahúsinu við Hverfisgötu á sýningunni Sjónarhorn.

Vinnuárið er rakið frá janúar til desember og byrjað á ullarvinnu en endað á að kýr er teymd, sennilega til að leiða hana undir naut. Ekki er vitað um höfund almanaksins en í Þjóðminjasafni eru varðveitt stök rifrildi úr sams konar teikningum, augljóslega eftir sama teiknara.

Það vekur sérstaka eftirtekt hve mörg smáatriði eru á myndunum og hversu vel höfundurinn þekkir til lifnaðarhátta í sveit. Ekki eru aðeins nákvæmar myndir sem sýna búshluti og ýmis verkfæri heldur einnig hvernig menn báru sig að við verkin. Hér má nefna ullarvinnu, mjaltir, kolagerð, grasaferð, heyskap, smölun, slátrun, mótekju, selveiðar, kornmölun og járnsmíði. Það kemur nokkuð á óvart að sjá nakta karlmenn á sundi og fólk á skautum og skíðum, en þessar íþróttir voru sjaldgæfar fram á 20. öld. Ein mynd fyrir desember sýnir rjúpnaveiðar með snörum og standa tveir karlar með langt band á milli sín, með þremur áföstum lykkjum. Ekki er notuð fuglastöng, eins og algengt var, og er því um merkilega heimild að ræða. Nokkuð torræð er mynd fyrir október þar sem tveir karlar virðast halda í naut en hún mun sýna slátrun með svokölluðu svæfingarjárni sem stungið var í hnakka dýrsins við banakringluna. Athygli vekja ennfremur taðkvísl og klára í maí sem hafðar voru til að mylja húsdýraáburðinn áður en honum var dreift á túnið. Almanakið er skemmtileg heimild um gamla sveitasamfélagið og minnir um sumt á gömul norræn almanök.

Þjms TrG-95

http://www.safnahusid.is/vefleidsogn/fra-voggu-til-grafar/#id-254


Aðalvalmynd

  • Sýningar & viðburðir
    • Grunnsýningar
      • Þjóð verður til
        • Tímabil
    • Sérsýningar
      • Eldri sýningar
      • Sýningar í gangi
      • Sýningar framundan
    • Aðrar sýningar
      • Gripur mánaðarins
      • Hús Þjóðminjasafns
      • Ljósmynd mánaðarins
      • Vefsýningar
        • Minningarsjóður Ásu G Wright
    • Viðburðir
      • Fyrirlestrar
      • Eldri fyrirlestrar Þjóðminjasafns
      • Menningarnótt
      • Viðburðir framundan
      • Sumardagskrá 2022
  • Þjónusta
    • Fyrir gesti
      • Aðgengi
      • Leiðsögn fyrir hópa
      • Fjölskyldan
      • Kaupa miða
      • Opnunartími og verð
      • Verslun og veitingar
    • Fræðsla
      • Skólar
        • Leikskólar
        • Grunnskólar
        • Gullkista safnfræðslunnar
        • Framhaldsskólar
        • Háskólar
        • Á eigin vegum
        • Fræðslupakkar fyrir grunnskóla
        • Fræðsluefni
        • Fræðslupakkar
      • Stafrænt fræðsluefni
        • Börn á safninu
        • Gamalt og gott
        • Fyrirlestrar
        • Safnið í sófann
    • Salarleiga
      • Fyrirlestrasalur Þjóðminjasafninu við Suðurgötu
      • Leiga á Myndasal fyrir móttökur
    • Önnur þjónusta
      • Beiðni um aðgang að gripum til skoðunar
      • Beiðni um lán á safnkosti
      • Bóka- og heimildasafn
      • Eftirtökur af ljósmyndum hjá Ljósmyndasafni Íslands
      • Leita í safneign
      • Viltu afhenda safninu muni eða myndir?
  • Stofnunin
    • Um safnið
      • Fréttir
      • Hlutverk og stefnur
      • Lög og reglugerðir
      • Saga safnsins
      • Skipurit
      • Minjar og Saga
    • Starfsemi
      • Fjármál og þjónusta
        • Bóka- og heimildasafn
        • Skjalasafn
      • Húsasafn
      • Ljósmyndasafn Íslands
        • Gjaldskrá
        • Myndasöfn
        • Rannsóknir
        • Skráning
        • Varðveisla mynda
        • Þekkir þú myndina
      • Munasafn
        • Beiðni um aðgang að gripum til skoðunar
        • Skil á gripum úr fornleifarannsókn
        • Beiðni um sýnatöku á safnkosti
        • Beiðni um lán á grip til sýninga
        • Forvarsla
      • Þjóðháttasafn
      • Rannsóknarstöður
      • Starfsfólk
      • Laus störf
    • Útgáfa
      • Bækur og rit
      • Handbækur
      • Skýrslur
  • Vefverslun
  • En
    • Museum information
      • Visit
        • Book your ticket now
        • Opening hours and prices
        • Café and shops
        • Location
        • Guided Tour
        • Family Room
      • Exhibitions
        • Permanent Exhibitions
        • Temporary Exhibitions
        • Previous Exhibitions
      • About the Museum
        • COVID-19
        • Historic Buildings
        • Photographs and Prints
        • History and Role
      • Applications
        • Application for access to Museum objects for examination
        • Application for sampling
    • Upcoming events
    • Web store
    • IS
    • Audio Guide
  • Leita

Leita á vefnum


Póstlisti Þjóðminjasafnsins

Þjóðminjasafn Íslands Suðurgötu 41, 102 Reykjavík
Sími: 530-2200
thjodminjasafn@thjodminjasafn.is
Opið alla daga frá kl. 10-17
Persónuvernd hjá Þjóðminjasafni Íslands
  • Instagram
  • Facebook
Opnunartími og verð

Þetta vefsvæði byggir á Eplica