Predikunarstóll
Apríl 2015
Predikunarstóll úr kirkjunni í Vatnsfirði við Ísafjarðardjúp er gripur aprílmánaðar. Nú þegar bænadagar og páskar eru framundan er ekki úr vegi að gripur mánaðarins sé úr kirkju en þar að auki er stóllinn hluti af sýningunni Sjónarhorn sem verður opnuð í Safnahúsinu við Hverfisgötu þann 18. apríl.
Prédikunarstóllinn er gerður af séra Hjalta Þorsteinssyni sem var prestur í Vatnsfirði árin 1692-1742. Hann smíðaði einnig kirkjuna sjálfa og skreytti hana að innan með máluðum myndum, en þær hafa því miður ekki varðveist.
Prédikunarstóllinn er í barokkstíl og efst á honum er ritningargrein: Sælir eru þeir sem heyra Guðs orð og varðveita það. Þar undir eru upphleyptar myndir af Kristi og guðspjallamönnunum Jóhannesi, Markúsi, Matteusi og Lúkasi og stendur hver þeirra á palli með einkennistáknum sínum framan á: Guðs lamb er hjá Kristi, örn hjá Jóhannesi, vængjað ljón hjá Markúsi, engill hjá Matteusi og naut hjá Lúkasi. Neðst eru svo útskornar englamyndir.
Útskurðurinn er vandaður og vitnar um góðan handverksmann, þó ekki atvinnutréskera, og er ólíkur flestum öðrum íslenskum verkum af sama toga. Séra Hjalti var menntaður í söng og hljóðfæraslætti í Kaupmannahöfn en hann lagði þar jafnframt stund á myndlist. Auk útskurðarins er hann best þekktur fyrir málaralist og eftir hann hafa meðal annars varðveist myndir af biskupshjónum, prestum og sýslumönnum.
Þjms 10476
Heimildir:
Þóra Kristjánsdóttir (2005). Mynd á þili. Íslenskir myndlistamenn á 16., 17. og 18. öld. Reykjavík: Þjóðminjasafn Íslands og JPV útgáfa.
Magerøy, Ellen Marie (2001). Útskurður og líkneskjusmíð úr tré. Árbók Hins íslenska fornleifafélags 1999, bls. 5-110.
Sarpur - menningarsögulegt gagnasafn. Þjms. 10476.