- Næsta færsla
- Fyrri færsla
Vöxtur
Apríl 2012
Ritstj. Steinar Örn Atlason
Úr póstkortasafni Andrésar Johnsen. AJ 3009.
Árið 1845 fæddist drengur á bænum Ríp í Skagafirði, yngstur 10 systkina. Vegna ómegðar á heimilinu var hann sendur í fóstur fljótlega eftir fæðingu:
Svo leið tíminn, og ég var búinn að vera þarna á annað ár. Þá fékk faðir minn orð frá einhverjum, sem sagði, að honum væri betra að vitja um drenginn sinn á Gvendarstöðum, svo hann fór að vitja um mig. En honum var ekki sama, þegar hann sá mig. Ég var orðinn krepptur, svo að knéin voru uppi undir hökunni og ekki hægt að rétta úr mér, hvernig sem reynt var. [...] Svo fór hann með mig, og móðir mín tók við mér, og sagði hún, að sér hefði sárnað að sjá mig svona. En hún dó ekki ráðalaus. Hún fór að eins og sagt var, að tröllskessurnar hefðu haft það, þegar þær náðu mennskum mönnum til sín, en vildu stækka þá. Það var sagt, að þær hafi borið á þá feiti og bakað þá við eld og teygt þá svo og smástækkað þá svona. Móðir mín fór þannig að, bar feiti á allar taugar á fótunum og lærunum, hitaði svo við eld og smáteygði svo úr mér, þangað til hún gat fengið mig réttan, þá fór hún að láta mig standa á fæturnar. Og svo fór ég að reyna að ganga, og gekk það furðu fljótt. En ekki held ég, að ég hafi stækkað mikið. Það var kominn í mig svo mikill kyrkingur af þessu öllu, og var því allra barna minnstur á mínum aldri og því alltaf kallaður litli Siggi. (Sigurður Ingjaldsson, Ævisaga Sigurðar Ingjaldssonar frá Balaskarði. Rituð af honum sjálfum. 3 bindi (Reykjavík: Prentsmiðja Jóns Helgasonar, 1913-1933), bls. 14-15.)
Rétt fyrir 1800 var meðalhæð karla 169,2 sentimetrar en var komin upp í 173,6 árið 1920, eftir því sem fram kemur í Hagskinnu (Reykjavík: Hagstofa Íslands, 1997). En mælingar voru stopular á þessum tímum og því eru tölurnar ekki áreiðanlegar. Drengirnir á myndinni hafa örugglega ekki náð meðalhæð samferðamanna sinna, báðir rétt rúmlega tvítugir, ef marka má það sem stendur á póstkortinu sem myndin er prentuð á. Þeir hafa trúlega ekki, frekar en litli Siggi, komist í tröllkvenna hendur.
Sigurður Gylfi Magnússon