Sjónarhorn – ferðalag um íslenskan myndheim
Safnahúsið við Hverfisgötu
Sjónarhorn er grunnsýning á sjónrænum menningararfi Íslendinga en þar eru sýnd verk úr safneign Þjóðminjasafns Íslands, Listasafns Íslands, Náttúruminjasafns Íslands, Þjóðskjalasafns Íslands, Landsbókasafns Íslands - Háskólabókasafns og Stofnunar Árna Magnússonar. Þjóðminjasafnið sér um rekstur hússins.
Samstarf þessara sex stofnana býður upp á einstakt tækifæri til að skoða arfleifðina í nýju samhengi og varpa ljósi á ósagða sögu með nýstárlegum hætti. Sýningarstjóri er Markús Þór Andrésson. Arnar Freyr Guðmundsson er hönnuður merkis Sjónarhorna.
Þjóðminjasafnið rekur safnbúð í húsinu.

Safnahúsið er við Hverfisgötu 15 og er hluti af Þjóðminjasafni Íslands.