Eldri sýningar

Rauðir gúmmískór og John

  • 18.8.2011 - 4.9.2011, Myndasalur - Þjóðminjasafnið Suðurgötu

Sýning á málverkum, teikningum og innsetningu Evu G. Sigurðardóttur.

Eva G.S. vinnur með setningu Johns Lennons „All you need is love“ og rauða gúmmískó.
John Lennon og rauðir gúmmiskór tengjast í raun ekki á neinn hátt en tengjast í vinnuferlinu sjálfu. Eru hluti af ferli þannig að það sem tengist ekki tengist þó. Verkin eru auk hugmynda eða hugleiðinga um okkur sem þjóð, sjálfskönnun og könnun eigin vinnuferlis með áherslur, leiðir og merkingu. Hugmyndaleg útfærsla verður ferli þar sem eigin líkami, tillfinning og sál, í verkinu sjálfu umbreyta vinnuferli verksins.

Eva vinnur á margræðan hátt, kannar margbreytileikann, í fortíð, nútíð og framtíð, mannlífið, eigin tilfinningar, raunveruleika, drauma, hugmyndaflug, hugleiðingar og spurningar sem vakna upp í vinnuferlinu. Hún vinnur bæði hlutbundið og óhlutbundið, notar myndmál jafnt sem bókstafi og orð sem verða hluti myndmálsins sjálfs. Bæði hinn hlutbundni og hinn óhlutbundni veruleiki er kannaður án þess þó að leita lausna eða svara.

Eva G. S. útskrifaðist úr Mynd- og Handíðaskóla Íslands 1989 og var við nám í École des Beaux Arts de Lyon í Frakklandi 1990-91. Hún lauk kennsluréttindum frá Listaháskóla Íslands 2005. Þetta er 10 einkasýning Evu en hún hefur haldið bæði einka- og samsýningar hér heima og erlendis frá árinu 1991.

Sýningin stendur til sunnudagsins 4. september nk.