Stekkjastaur kom fyrstur: 12. des kl. 11
Jólasveinarnir þjóðlegu koma nú vel klæddir í Þjóðminjasafnið á slaginu 11 frá og með 12. desember. Í dag er það hann Stekkjastaur sem reyndi hér áður fyrr að sjúga ærnar í fjárhúsunum hjá bændum.
Lesa meiraGiljagaur var annar: 13. des kl. 11
13. desember kemur Giljagaur. Áður en mjaltavélar komu til sögu var hann vanur að laumast inn í fjós og stela froðu ofan af mjólkurfötum.
Lesa meiraStúfur hét sá þriðji: 14. des kl. 11
Jólasveinninn sem kemur til byggða 14. desember heitir Stúfur og er heldur lágur til hnésins. Hann er líka stundum kallaður Pönnuskefill, því í gamla daga reyndi hann að hnupla matarögnum af steikarpönnunni.
Lesa meiraSá fjórði, Þvörusleikir ... og Flotsokka: 15. des kl. 11
Þann 15. desember kemur Þvörusleikir ofan af fjöllum. Hér áður fyrr stalst hann til þess að sleikja þvöruna, sem potturinn var skafinn með. Nú á dögum reynir hann að finna þvörur í Þjóðminjasafninu þegar hann kemur þangað í heimsókn.
Flotsokka, fjöruga systir hans, verður með í för með fulla sokkar af floti!
Lesa meiraSá fimmti, Pottaskefill: 16. des kl. 11
16. desember má búast við Pottaskefli í heimsókn. Hann heitir líka Pottasleikir því í gamla daga sat hann um að komast í matarpotta sem ekki var búið að þvo og sleikti skófirnar innan úr þeim.
Lesa meiraSá sjötti, Askasleikir: 17. des kl. 11
Askasleikir kemur í Þjóðminjasafnið 17. desember klukkan 11. Í gamla daga át fólk matinn sinn upp úr öskum sem stundum voru geymdir undir rúmi eða á gólfinu. Askasleikir faldi sig stundum undir rúmi og ef einhver setti askinn sinn á gólfið þá greip hann askinn og sleikti allt innan úr honum.
Lesa meiraSjöundi var Hurðaskellir: 18. des kl. 11
Hurðaskellir kemur í bæinn þann 18. desember. Hann gekk alltaf skelfing harkalega um og skellti hurðum svo fólk hafði varla svefnfrið. Hann á það enn til að skella hurðum og gerir það alltaf þegar hann heimsækir Þjóðminjasafnið.
Lesa meiraSkyrjarmur, sá áttundi: 19. des kl. 11
19. desember er von á jólasveini sem heitir Skyrjarmur, af því að honum þótti svo gott skyr að hann stalst inn í búrið og hámaði í sig skyrið upp úr keraldi.
Lesa meiraNíundi var Bjúgnakrækir: 20. des kl. 11
Bjúgnakræki má búast við 20. desember. Honum þótti best að borða bjúgu og pylsur og stal þeim hvar sem hann komst í færi.
Lesa meiraTíundi var Gluggagægir ... og Leppatuska 21. des kl. 11
21. desember kemur hann Gluggagægir í heimsókn. Hann var ekki eins matgráðugur og sumir bræður hans, en skelfing forvitinn að gægjast á glugga og jafnvel að stela leikföngum sem honum leist vel á.
Lesa meiraEllefti var Gáttaþefur og Taska kemur með: 22. des kl. 11
22. desember kl. 11 má búast við Gáttaþef sem þekkist á því að hann er með alveg svakalega stórt nef. Honum fannst alltaf óskaplega góð laufabrauðs- og kökulyktin þegar verið var að baka fyrir jólin og reyndi hann að hnupla einni og einni köku. 22. desember var líka stundum kallaður hlakkandi því þá voru börnin farin að hlakka svo mikið til jólanna.
Lesa meiraKetkrókur, sá tólfti: 23. des kl. 11
Á Þorláksmessu, 23. desember, kemur Ketkrókur, sem er svo sólginn í ket. Í gamla daga rak hann langan krókstaf niður um eldhússtrompinn og krækti sér í hangiketslæri sem héngu uppi í rjáfrinu eða hangiketsbita upp úr pottinum en þá var hangiketið soðið á Þorláksmessu.
Lesa meiraÞrettándi var Kertasníkir: 24. des kl. 11
Kertasníkir kemur á aðfangadag, 24. desember kl.11. Í eldgamla daga voru kertin skærustu ljós sem fólk gat fengið. En þau voru svo sjaldgæf og dýrmæt að mesta gleði barnanna á jólunum var að fá sitt eigið kerti. Og aumingja Kertasníki langaði líka að eignast kerti.
Lesa meira