Söfn og umhverfismál, umbreyting á mannöld
Söfn geta gert mun meira en þau gera í dag í að upplýsa almenning um loftlagsbreytingar af mannavöldum og kallað fram almenna vitundarvakningu um umhverfismál. Þriðjudaginn 15. mars kl. 12 flytur Andrea Þormar safnkennari í Þjóðminjasafninu, fyrirlestur um söfn og umhverfismál. Fyrirlesturinn fer fram í fyrirlestrasal safnsins og í beinu streymi á YouTube rás safnsins .
Fjallað verður um hvernig afstaða til náttúrunnar mótast og hvernig menntun og upplýsingar geti unnið í þágu náttúruverndar. Einnig verður farið yfir sögu Náttúruminjasafns Íslands og mikilvægis þess sem eitt af þremur höfuðsöfnum landsins. Andrea lauk meistarnámi í safnafræði haustið 2021 og er erindið byggt á lokaverkefni hennar.
Aðgöngumiði í safnið gildir. Ókeypis fyrir handhafa árskorts og ókeypis fyrir börn að 18 ára aldri. Árskort kostar 2.500 kr. og gildir á allar sýningar og viðburði í Þjóðminjasafni Íslands.
Verið öll velkomin.
Mynd skjöldur: Grétar Már Þorvaldsson