Hann kann þann galdur
Hádegisfyrirlestur Þjóðminjasafns 27. september
Í tilefni af opnun tveggja nýrra sýninga á ljósmyndum Jóns Kaldals í Þjóðminjasafni Íslands mun Einar Falur Ingólfsson flytja erindi um myndgerð og stílbrögð ljósmyndarans. Einar Falur bregður upp völdum lykilverkum frá ferli hans, setur verkin í sögulegt samhengi og veltir fyrir sér hugmyndafræði og helstu áherslum sem birtast í verkunum.
Einar Falur Ingólfsson er ljósmyndari, rithöfundur, kennari og blaðamaður en hefur hann fjallað mikið í ræðu og riti um myndlist og bókmenntir. Margar sýningar hafa verið haldnar á ljósmyndaverkum hans, heima og erlendis.
Meðal bóka hans má nefna Úrvalið - Íslenskar ljósmyndir 1866-2009 (2009), Sögustaðir - Í fótspor W.G. Collingwoods(2010) og Án vegabrefs (2011). Þá er hann höfundur texta í bókinni Kaldal - Aldarminning sem kom út fyrir tuttugu árum þegar þess var minnst að öld var frá fæðingu meistarans.