Hádegisfyrirlestur: Efnahagsleg staða vinnukvenna á 18. og 19. öld.
Guðný Hallgrímsdóttir sagnfræðingur
Stór hluti íslenskra kvenna á 18. og 19. öld starfaði í vinnumennsku allt sitt líf og giftist aldrei. Margar þeirra ferðuðust um með eigið búfé og flestar áttu þær framleiðslutæki þar sem konur sinntu hvers kyns sérhæfðri þjónustu sem nærsamfélag þeirra þarfnaðist. Í krafti þess gátu margar þeirra eflaust sett skilyrði fyrir ráðningu hjá bændum eða beðið um betri kjör. Erfitt hefur hins vegar reynst að álykta eitthvað um efnhagslega stöðu kvenna, þ.e. hvort þær höfðu getu til að selja þjónustu sína eða fengu arð af eigum sínum.
Í erindinu verður fjallað um hvernig nýta má heimildir á Þjóðskjalasafni Íslands til að rýna í efnahagslega stöðu vinnukvenna á 18. og 19. öld.
Fyrirlestrinum verður streymt á Youtube-rás safnsins og má fylgjast með fyrirlestrinum hér: