Hádegisfyrirlestur: Einkaskjalasöfn og merking þeirra
Sigurður Gylfi Magnússon, prófessor í menningarsögu við Háskóla Íslands, flytur síðasta erindið í fyrirlestraröð vetrarins.
Í erindinu mun Sigurður Gylfi fara yfir hugmyndir fólks um hluti sem það safnar og spyr: Hverju söfnum við að okkur? Hver er merking hlutanna fyrir einstaklingana? Til að svara spurningunum leitar Sigurður Gylfi meðal annars í efni sem tilheyrði afa hans, Helga Magnússyni járnsmiði og kaupmanni í Reykjavík. Helgi fæddist á 19. öld í íslenska bændasamfélaginu en gerðist síðar góðborgari í Reykjavík á fyrri hluta 20. aldar. Hann skildi eftir sig safn mynda – nokkurs konar arkíf – sem Sigurður Gylfi rýnir í til að sýna fram á hversu mikilvægt er að hægja á rannsóknarferlinu til að öðlast dýpri skilning á hversdagslegri upplifun fólks á efnisveruleikanum.
Fyrirlesturinn verður í streymi á Youtube-rás safnsins og má fylgjast með streyminu hér:
https://www.youtube.com/watch?v=1oT3V8eQ7b4
Sigurður Gylfi er verkefnisstjóri öndvegisverkefnisins Heimsins hnoss, en samnefnd sýning stendur nú yfir í Þjóðminjasafni Íslands og er ætlað að miðla afrakstri rannsókna verkefnisins, sem hópur fræðimanna tók þátt í. Með erindi sínu bindur Sigurður Gylfi endahnútinn á fyrirlestraröð þá sem haldin hefur verið í tengslum við sýninguna.
Hér má lesa um sýninguna Heimsins hnoss - Lúinn kistill, silfurskeið og nærbuxur (með gati)