Hádegisfyrirlestur Þjóðminjasafns Íslands. Ólafur Rastrick
Af erlendu vogreki: Íslensk þjóðmenning og viðtaka „óæskilegra“ menningaráhrifa
Þriðjudaginn 10. október kl. 12 flytur Ólafur Rastrick dósent í þjóðfræði erindi í fyrirlestrasal Þjóðminjasafns Íslands.
Ólafur Rastrick starfar sem dósent í þjóðfræði við Félags- og mannvísindadeild og hefur kennt námskeið um líkamsmenningu, menningarsögu, menningararf, menningarpólitík og ómenningu. Fyrirlesturinn heitir Af erlendu vogreki: Íslensk þjóðmenning og viðtaka „óæskilegra“ menningaráhrifa.
Meðal þrástefja samfélagsumræðunnar er sú hugmynd að fyrir hönd íslenskrar menningar sé háð linnulaus varnarbarátta gegn óæskilegum áhrifum sem vilji skjóta rótum í samfélagi okkar með ófyrirséðum afleiðingum. Oftar en ekki er litið svo á að slíkt vogrek sé af erlendum toga, sprottið af útlendri lágmenningu. „Sjálfstæðisbarátta smáþjóðar er eilíf“, sagði Gylfi Þ. Gíslason árið 1942 og átti við að Íslendingar þyrftu jafnan að standa vörð um menningarlega sérstöðu sína og verjast spillandi áhrifum útlendrar fjöldamenningar.
Í erindinu verður staðnæmst við nokkur dæmi úr viðtökusögu erlendra menningaráhrifa á 20. öld sem skilgreind voru sem óæskileg eða spillandi. Skoðað verður hvernig vörslumenn menningarinnar sáu fyrir sér að smit breiddist út um íslenskt samfélag og hefði skaðleg áhrif á menningarástand þjóðarinnar. Markmiðið er að varpa nokkru ljósi á virkni hugmyndarinnar um hið útlenda í íslenskri samfélagsumræðu og hvernig málsmetandi menn hafa gegnum tíðina metið þá ógn sem stafaði af því sem þeir álitu menningarlega framandi landi og þjóð.
Fyrirlesturinn er annar í röð hádegisfyrirlestra Þjóðminjasafnsins haustið 2017 og er skipulagður í tengslum við sýninguna Ísland í heiminum, heimurinn í Íslandi. Allir velkomnir og ókeypis aðgangur.