Hugmyndahatturinn
handbók um skapandi samstarf grunnskóla og safna
Þriðjudaginn 10. maí kl. 12 flytur Jóhanna Bergmann, safnkennari við Þjóðminjasafn Íslands, erindi í fyrirlestrasal safnsins. Í fyrirlestrinum ræðir Jóhanna um handbók sem hún hefur unnið fyrir grunnskólakennara um skapandi samstarf grunnskóla og safna um menntun barna. Handbókin nefnist Hugmyndahatturinn og í henni eru 28 dæmi um skapandi samstarf við grunnskóla frá söfnum víðsvegar á landinu. Fyrirlesturinn verður einnig í beinu streymi hér á YouTube rás safnsins.
Hugmyndahatturinn er aðgengilegt uppflettirit sem gagnast sem innblástur fyrir grunnskólakennara um mögulegar nálganir í fræðslu nemenda í samstarfi við söfn, þar sem sköpunarkraftur nemenda fær að njóta sín og safnið verður að vettvangi þeirra til að rannsaka, uppgötva og gera nýjar tengingar í huga sér. Handbókin kemur sér einnig vel fyrir starfsfólk safna sem hefur áhuga á að brydda upp á skemmtilegum nýjungum í safnfræðslu fyrir grunnskólanemendur. Jóhanna ræðir tilurð handbókarinnar, uppbyggingu hennar og notagildi. Hún setur hana í samhengi við safnfræðslu á Íslandi, opinberar stefnur ríkis, sveitastjórna og stofnana í menntamálum og málefnum menningar og lista auk barnamenningar. Jafnframt dregur hún fram kennslufræðilegt samhengi safnfræðslu og áherslu á skapandi starf í kennslu grunnskólabarna.
Jóhanna Bergmann er safnkennari við Þjóðminjasafn Ísland. Hún lýkur meistaranámi í kennslufræðum við listkennsludeild Listaháskóla Íslands í vor og var gerð Hugmyndahattsins lokaverkefni hennar.
Aðgöngumiði í safnið gildir.
Aðgöngumiði í Þjóðminjasafnið kostar 2.500 kr. fyrir fullorðna og gildir í eitt ár, frítt er fyrir börn yngri en 18 ára. Aðgöngumiðinn gildir að öllum sýningum og viðburðum á vegum safnsins.