Eldri fyrirlestrar Þjóðminjasafns
Fyrirlestur: Húsasafn Þjóðminjasafns Íslands
Guðmundur Lúther Hafsteinsson sviðsstjóri húsasafns flytur erindi um húsasafnið þriðjudaginn 3. nóvember kl. 12. Fyrirlesturinn verður fluttur í gegnum Teams live stream og einnig tekinn upp og birtur á Youtube rás Þjóðminjasafnsins. Hlekkur á viðburðinn er hér.
Húsasafn Þjóðminjasafns Íslands veitir innsýn í húsakost þjóðarinnar á seinni öldum og þróun húsagerðar á Íslandi. Húsasafnið er kjarni safnkosts Þjóðminjasafns Íslands á landsbyggðinni. Meðal húsa Þjóðminjasafnsins eru allir stærstu og merkustu torfbæir landsins og allar þær torfkirkjur sem eru í upprunalegri gerð.