Boðið til stofu. Myndir á veggjum landsmanna
Þriðjudaginn 2. nóvember kl. 12 flytur Kristín Halla Baldvinsdóttir sérfræðingur á Ljósmyndasafni Íslands erindi í fyrirlestrasal Þjóðminjasafns Íslands. Fyrirlesturinn fjallar um myndir í stofum landsmanna í gegnum tíðina. Rýnt er í ljósmyndir sem sýna myndir á veggjum og myndefni þeirra krufið. Fyrirlestrinum verður líka streymt á YouTube rás safnsins.
Fyrirlesturinn er fjórði í röð hádegisfyrirlestra safnsins og er haldinn í tengslum við sýninguna Mannamyndasafnið sem nú stendur yfir í Ljósmyndasal safnsins.
Aðgöngumiði í safnið gildir. Ókeypis fyrir handhafa árskorts og ókeypis fyrir börn að 18 ára aldri. Árskort kostar 2.000 kr. og gildir á allar sýningar og viðburði í Þjóðminjasafni Íslands.
Verið öll velkomin.
Ljósmynd: Carl Ólafsson (1887-1953)