Sarpur.is – Gátt almennings að menningararfi þjóðarinnar
Vala Gunnarsdóttir, fagstjóri Sarps, flytur hádegisfyrirlestur í Þjóðminjasafninu við Suðurgötu 23. mars n.k. kl. 12. Vegna fjöldatakmarkana er nauðsynlegt að bóka sig hér eða hringja í síma 530 2202. Grímuskylda og tveggja metra reglan gildir á safninu. Fyrirlestrinum verður einnig streymt í gegnum YouTube rás safnsins.
Í fyrirlestrinum verður veitt innsýn í sögu skráningarkerfisins Sarps sem um 60 söfn á landinu skrá aðföng sín í. Samkvæmt safnalögum frá 2011 ber söfnum skylda að veita fólki aðgang að menningararfinum og „stuðla að aukinni þekkingu á þessari arfleifð og skilningi á tengslum hennar við umheiminn.“ (Safnalög, nr. 141/2011). Árið 2013 var sarpur.is opnaður og er það talin hafa verið ákveðin bylting í aðgengi almennings að safnkosti safna á landsvísu. Farið verður yfir vefinn sarpur.is og tekin dæmi um skráningarverkefni sem Þjóðminjasafnið og önnur söfn hafa unnið að undanfarið og birt á á vefnum. Einnig verður lauslega farið yfir möguleika og markmið vefsins í tengslum við þarfagreiningu fyrir arftaka núverandi skráningakerfis Sarps 3.0 sem nú fer fram.
Aðgangur er ókeypis fyrir handhafa árskorts og fyrir börn að 18 ára aldri. Annars gildir stakur aðgöngumiði. Árskort kostar 2.000 kr. og gildir á allar sýningar og viðburði í Þjóðminjasafninu.
Verið öll velkomin.