Sérfræðibókasafn í sögulegu ljósi
Gróa Finnsdóttir, bókasafns- og upplýsingafræðingur í Þjóðminjasafni Íslands, flytur hádegisfyrirlestur í fyrirlestrasal safnsins 9. mars kl. 12. Vegna fjöldatakmarkana er nauðsynlegt að bóka sig hér eða með því að hringja í síma 530 2202. Fyrirlestrinum verður einnig streymt í gegnum YouTube rás safnsins.
Fjallað verður um hlutverk og mikilvægi sérfræðibókasafna í sögulegu ljósi. Saga bókasafns Þjóðminjasafnsins verður rakin og hvernig það er nauðsynlegur þáttur í starfsemi safnsins og rannsóknum. Bókasafnið er stærsta safn landsins á sviði forvörslu, textílfræða, fornleifafræða, safnafræða og trúlega eitt stærsta listiðnaðar- og þjóðháttabókasafn landsins og því mikilvægt háskólanemum og öllum öðrum sem stunda sérhæft nám í þessum greinum. Bókasafnið er staðsett að Tjarnarvöllum 11, Hafnarfirði og er öllum opið.
Aðgöngumiði í safnið gildir. Ókeypis fyrir handhafa árskorts og ókeypis fyrir börn að 18 ára aldri. Árskort kostar 2.000 kr. og gildir á allar sýningar og viðburði í Þjóðminjasafni Íslands.
Verið öll velkomin.