Textílana heim!
Klæðagerð og íslensku klaustrin
Þriðjudaginn 15. febrúar kl. 12 mun Steinunn Kristjánsdóttir, fornleifafræðingur flytja erindi í fyrirlestrasal Þjóðminjasafns Íslands. Í fyrirlestrinum verður farið yfir textílgerð og klæðaeign íslensku miðaldaklaustranna en einnig fyrirliggjandi rannsóknir á miðaldaklæðum sem enn eru varðveitt. Fyrirlesturinn verður líka í beinu streymi á YouTube rás safnsins.
Handrit sem unnin voru hérlendis á miðöldum hafa vakið verðskuldaða athygli enda um afar verðmætan menningararf að ræða. Í handritunum eru varðveittar mikilvægar upplýsingar um tilurð og þróun íslenskunnar en einnig um samfélög miðalda í N-Evrópu. Ritunin fór fram á stærstu höfðingjasetrunum á þjóðveldisöld (930–1262) en einnig í íslensku munkaklaustrunum, allt þar til prentverkið kom til sögunnar á sextándu öld. Þar voru skrifuð jafnt kirkjuleg sem veraldleg rit á latínu og norrænu, sum samkvæmt pöntun erlendis frá. En á sama tíma fór fram umsvifamikil og merkileg textílgerð á íslensku bæjunum en líka í nunnuklaustrunum tveimur. Vaðmálið var helsti gjaldmiðill Íslendinga allt þar til skreiðin tók við um og eftir 1300, líklega vegna föstunnar. Um það leyti jókst ennfremur framleiðsla verðmætra kirkjuklæða, samhliða blómlegum og örum vexti miðaldakirkjunnar. En þrátt fyrir að textílar séu, eins og heitið bendir til, í raun textar hefur þeim verið mun minni gaumur gefinn en textum á bókfelli. Klæðagerð, hvers kyns, hefur oft á tíðum verið flokkuð sem verðlaus handavinna eða tómstundir en verðgildi handrits var þó það sama og góðs hökuls, svo dæmi sé tekið.
Sýningin Kirkjur Íslands: Leitin að klaustrunum stendur í Horni í Þjóðminjasafni Íslands. Hún byggir á rannsóknum Steinunnar Kristjánsdóttur, prófessors í fornleifafræði við Háskóla Íslands.
Aðgöngumiði í safnið gildir. Ókeypis fyrir handhafa árskorts og ókeypis fyrir börn að 18 ára aldri. Árskort kostar 2.500 kr. og gildir á allar sýningar og viðburði í Þjóðminjasafni Íslands.
Við biðjum gesti að virða þær sóttvarnarreglur sem eru í gildi.
Verið öll velkomin.