Hlutverk tilraunafornleifafræði í rannsóknum á fortíðinni
William R. Short og Reynir A. Óskarson
Þriðjudaginn 3. maí kl. 12 flytja Dr. William R. Short og Reynir A. Óskarson frá Hurstwic hópnum (hurstwic.com) erindi í Þjóðminjasafni Íslands. Fyrirlesturinn fjallar um hlutverk tilraunafornleifafræði í sögulegum rannsóknum, einkum tilraunir hópsins með járngerð á landnámsöld. Fyrirlesturinn er haldinn í tengslum við sýninguna Úr mýri í málm og fer fram á ensku. Beint streymi verður frá YouTube rás safnsins.
Tilraunafornleifafræði er vísindaleg aðferðafræði sem beitt er til að sannreyna hugmyndir okkar um fortíðina. Í meira en 20 ár hefur Hurstwic hópurinn notast við tilraunafornleifafræðilegar aðferðir í rannsóknum á bardagaaðferðum víkinga og víkingasamfélaginu almennt.
Hefðbundnari heimildir, svo sem fornleifar og ritaðar heimildir, geta fleytt okkur áfram en þær hafa sín takmörk, sérstaklega þegar kemur að einstökum sviðum eins og bardögum og járngerð. Tilraunafornleifafræði er ómetanlegt verkfæri til að skýra óljósa mynd af fortíðinni. Þessi nálgun hefur gert Hurstwig hópnum kleift að sannreyna ýmsar kenningar um fortíðina.
Í fyrirlestrinum ræða Dr. William R. Short og Reynir A. Óskarson aðferðir og kosti tilraunafornleifafræði og hvernig þeir notuðu hana til að svipta hulunni af leyndardómum járngerðar á Íslandi sem og af öðrum sviðum. Mörgum af þessum rannsóknum eru gerð skil í nýlegri bók þeirra Men of Terror: A comprehensive analysis of Viking combat.
Aðgöngumiði í safnið gildir. Ókeypis fyrir handhafa árskorts og ókeypis fyrir börn að 18 ára aldri. Árskort kostar 2.500 kr. og gildir á allar sýningar og viðburði í Þjóðminjasafni Íslands.
Verið öll velkomin.