Eldri fyrirlestrar Þjóðminjasafns
Um skráningu og rannsóknir kirkjugripa
Þriðjudaginn 2. apríl kl. 12 flytur Þór Magnússon, fornleifafræðingur og fyrrverandi Þjóðminjavörður, erindi um skráningu og rannsóknir kirkjugripa.
Fyrirlesturinn fjallar um eldri heimildir um gripi í kirkjum fyrrum og svo skráningu og rannsóknir þeirra allt frá því er könnun fornleifa og fornminja á Íslandi hófst snemma á 19. öld. Einnig verður litið til síðari ára, á varðveizlu gripa í kirkjum og söfnum og í einkaeigu.
Fyrirlesturinn tengist yfirstandandi hátíðarsýningum í Þjóðminjasafni Íslands sem bera yfirskriftina Kirkjur Íslands. Gestum gefst tækifæri til að skoða sýningarnar að fyrirlestri loknum.
Um skráningu og rannsóknir kirkjugripaFyrirlesturinn er í röð hádegisfyrirlestra Þjóðminjasafns Íslands og er öllum opinn. Verið velkomin.