Örleiðsögn: Glæpir og refsingar

Í leiðsögninni Glæpur og refsing er sjónum beint að lögum og reglu á Íslandi frá landnámi. Gripir á grunnsýningu safnsins eru notaðir til að varpa ljósi á breytingar sem orðið hafa í dóms- og refsimálum. Fjallað verður um hegningarlög á Íslandi, þróun þeirra og aftökur.

Safnkostur Þjóðminjasafnsins er gestum til fróðleiks, skemmtunar og örvunar. Heimsókn í safnið er því skemmtileg og fræðandi fyrir alla fjölskylduna. Við bjóðum gestum margs konar leiðir til að upplifa sýningar safnsins og íslenska sögu. Hægt er að ganga um safnið án fylgdar, taka þátt í fjölskylduviðburðum eða fá leiðsögn hjá sérfróðu starfsfólki.

Aðgöngumiði í safnið gildir. Ókeypis fyrir handhafa árskorts og ókeypis fyrir börn að 18 ára aldri. Árskort kostar 2.000 kr. og gildir á allar sýningar og viðburði á Þjóðminjasafninu við Suðurgötu og í Safnahúsinu við Hverfisgötu. Venjulega er tekið gjald fyrir sérfræðileiðsögn, en vegna sérstakra aðstæðna hefur verið ákveðið að bjóða þessa leiðsögn án endurgjalds í sumar.


Verið velkomin samferða í sumar.


Sumardagskrá