Viðburðir framundan

Leiðsögn með sérfræðingi Listasafns Íslands

  • 13.10.2019, 14:00 - 14:45, Safnahúsið við Hverfisgötu

Sunnudaginn 13. október klukkan 14 leiðir Dagný Heiðdal, varðveislu- og skráningarstjóri Listasafns Íslands, gesti um sýninguna Sjónarhorn - ferðalag um íslenskan myndheim í Safnahúsinu við Hverfisgötu.

 Um 130 verk á sýningunni eru í eigu Listasafns Íslands og verður sjónum gesta einkum beint að höggmyndum í eigu safnsins. Sérstaklega verður fjallað um einn af kjörgripum Listasafns Íslands, höggmyndina Ganýmedes eftir Bertel Thorvaldsen (1770–1844), einn þekktasta listamann Evrópu á sínum tíma og einn helsta fulltrúa nýklassíska stílsins í höggmyndalist.

Sýningin Sjónarhorn er samstarfsverkefni Þjóðminjasafns Íslands, Listasafns Íslands, Náttúruminjasafns Íslands, Þjóðskjalasafns Íslands, Landsbókasafns-Háskólabókasafns og Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum.

Aðgöngumiði í safnið gildir. Verið öll velkomin.