Viðburðir framundan

Barnaleiðsögn: Saga úr jörðu. Hofstaðir í Mývatnssveit

  • 3.10.2021, 14:00 - 14:45, Bogasalur - Þjóðminjasafnið Suðurgötu

Hvernig vitum við það sem vitað er um lífið í gamla daga? Þú getur kynnst fólkinu á Hofstöðum, og hvernig fornleifafræðingar hafa komist að ýmsu um líf þess og aðstæður, á sýningunni Saga úr jörðu í Bogasal Þjóðminjasafnsins. Leiðsögnin er á dagskrá sunnudaginn 3. október kl. 14.

Á Hofstöðum í Mývatnssveit er merkileg minjaheild allt frá víkingaöld og fram á þá tuttugustu. Þar er gríðarstór veisluskáli sem er eitt stærsta mannvirki sem rannsakað hefur verið á Íslandi. Að auki eru þar minni mannvirki sem hvert hafði sitt hlutverk. Nafn jarðarinnar og skálatóftin mikla sem talin var hofið sem bæjarnafnið vísaði til varð til þess að fræðimenn fengu snemma áhuga á staðnum.

Aðgöngumiði í safnið gildir. Ókeypis fyrir handhafa árskorts og frítt fyrir börn yngri en 18 ára. Árskort kostar 2.000 kr. og gildir á allar sýningar og viðburði á Þjóðminjasafninu.

Við biðjum gesti að virða þær sóttvarnarreglur sem eru í gildi. Grímunotkun í safninu er valkvæð. Fjöldatakmörkun og nálægðarmörk taka ekki til barna sem fædd eru 2006 eða síðar. Verið öll velkomin.