Viðburðir framundan

Hvað er líkt með herstöð á Straumnesfjalli á Ströndum og gróðurhúsi á Suðurlandi?

Listamannaspjall á lokadegi Ljósmyndahátíðar Íslands

  • 27.3.2022, 14:00 - 16:00, Myndasalur - Þjóðminjasafnið Suðurgötu

Ljósmyndararnir Marinó Thorlacius og Vassilis Triantis taka á móti gestum í Myndasal Þjóðminjasafnsins ásamt Ágústu Kristófersdóttur, framkvæmdastjóra safneignar Þjóðminjasafns Íslands. 

Marinó Thorlacius

Straumnesfjall stendur milli Aðalvíkur í suðri og Rekavíkur í norðri og er nú hluti af friðlandinu á Hornströndum. Þar byggði og starfrækti bandaríski herinn ratsjárstöð á tímum kalda stríðsins. Hreinsun á fjallinu og nærliggjandi svæðum var framkvæmd árið 1991 í samstarfi hersins og Íslendinga þó enn megi sjá greinileg ummerki um þessa starfsemi á fjallinu. 

Marínó deilir hér með okkur sýn sinni á það sem enn stendur af ratsjárstöðinni við ysta haf. Eru þetta ummerki um mengunarslys eða eru þetta menningarsögulegar rústir? Sýningin Straumnes eru hluti af dagskrá Ljósmyndahátíðar Íslands.  

Vassilis Triantis

Þar sem rósir spruttu í snjó er sýning á ljósmyndum Vassilis Triantis. Sýningin er samsett úr ljósmyndum Vassilis sjálfs og myndum úr fjölskyldualbúmi tengdaforeldra hans, sem lengi voru rósabændur í Laugarási í Biskupstungum. Vassilis Triantis er fæddur í Grikklandi en býr og starfar í Hollandi. Vassilis hefur tekið þátt í sýningum víða og hlotið viðurkenningar fyrir verk sín. Síðasta viðurkenningin er tilnefning til verðlauna hjá Belfast Photo Festival 2022, fyrir bók sína sem er samnefnd sýningunni og mun Vassilis árita bók sína við tækifærið.

Ljósmyndahátíð Íslands er alþjóðleg ljósmyndahátíð sem haldin er í janúar annað hvert ár. Markmið hátíðarinnar er að vinna að framþróun ljósmyndunar sem listforms. Þjóðminjasafn Íslands er einn samstarfsaðila um hátíðina í ár og er viðburðurinn einmitt haldinn á lokadegi hátíðarinnar.

Aðgöngumiði í safnið gildir. Ókeypis fyrir handhafa árskorts og ókeypis fyrir börn að 18 ára aldri. Árskort kostar 2.500 kr. og gildir á allar sýningar og viðburði í Þjóðminjasafni Íslands.

Verið öll velkomin.