Viðburðir framundan

Leiðsögn fyrir blind og sjónskert börn

  • 8.3.2020, 14:00 - 14:45, Þjóðminjasafnið á Suðurgötu

Þjóðminjasafn Íslands býður upp á barnaleiðsögn með sérstöku tilliti til blindra og sjónskertra barna sunnudaginn 8. mars kl. 14:00. Barnaleiðsögn í Þjóðminjasafni Íslands er fyrir forvitna krakka og fjölskyldur þeirra.

Við stöldrum við á víkingaöld og veltum fyrir okkur lífi og aðstæðum fólks á landnámstímanum. Við handfjötlum eftirlíkingar af gripum þess tíma, kíkjum á beinagrindurnar og fræðumst um þær. Við skoðum kirkjugripi og upplifum stemmninguna í kirkjum og kirkjugörðum miðalda. Svo lærum við um bændasamfélag síðustu alda með því að kynnast daglegum verkum í torfbænum út frá gripum úr snertisafni Þjóðminjasafnsins. Það samanstendur af ýmsum hlutum sem gefa góða mynd af matarmenningu, handavinnu og leikföngum í gamla daga.  

Leiðsögnin er ókeypis fyrir blind og sjónskert börn og fjölskyldur þeirra. Ókeypis aðgangur fyrir öll börn og ungmenni undir 18 ára aldri. Aðgöngumiði í safnið gildir fyrir aðra gesti eldri en 17 ára. Aðgöngumiði gildir sem árskort. 

Árskort kostar 2.000 kr. og gildir á allar sýningar og viðburði á Þjóðminjasafninu við Suðurgötu og í Safnahúsinu við Hverfisgötu.