Viðburðir framundan

Fyrir alla muni í Þjóðminjasafni Íslands

  • 21.3.2021, 14:00 - 17:00, Þjóðminjasafnið á Suðurgötu

Sunnudaginn 21. mars kl. 14-17 verða til sýnis í Þjóðminjasafni Íslands nokkrir þeirra muna sem fjallað hefur verið um í sjónvarpsþáttunum Fyrir alla muni á RÚV. Stjórnendur þáttanna, Sigurður Pálmason og Viktoría Hermannsdóttir, ásamt Freyju Hlíðkvist Ó. Sesseljudóttur, sérfræðingi í safninu, munu spjalla við gesti og segja frá gripunum.

Kl. 14.15 mun fulltrúi Michelsen fjölskyldunnar færa Þjóðminjasafni Íslands formlega að gjöf merkilegan jakka sem varðveist hefur úr Petsamóferðinni frá árinu 1940. Margir farþegar rituðu nöfn sín á jakkann og er hann ekki síst merkilegur fyrir þær sakir. 

Aðgangur er ókeypis fyrir handhafa árskorts og fyrir börn að 18 ára aldri. Annars gildir stakur aðgöngumiði. Árskort kostar 2.000 kr. og gildir á allar sýningar og viðburði í Þjóðminjasafninu.

Við biðjum gesti að virða þær sóttvarnarreglur sem eru í gildi. Grímuskylda og tveggja metra reglan gildir á safninu. 

Verið öll velkomin.

Fyrir alla muni at the National Museum of Iceland

On Sunday March 21st, from 2–5 PM, selected artifacts from the TV-series Fyrir alla muni on RÚV will be on display at the National Museum of Iceland. The show's hosts, Sigurður Pálmason and Viktoría Hermannsdóttir, along with the museum curator Freyja Hlíðkvist Ó. Sesseljudóttir, will chat with guests about the artifacts.

At 2.15 PM the Michelsen family will formally donate a jacket from the Petsamo-tour to the museum.

All are welcome.