Viðburðir framundan

Ímyndun eða veruleiki? Þjóðsögur, kynjaskepnur og goðsögur.

  • 17.1.2021, 14:00 - 14:45, Safnahúsið við Hverfisgötu

Á sýningunni Sjónarhornum í Safnahúsinu er saman kominn ótrúlegur fjársjóður merkilegra teikninga, listaverka, náttúrugripa, handrita, forngripa, ljósmynda og korta frá sex aðal söfnunum í höfuðborginni. Sunnudaginn 17. janúar þræðum við saman hluta sýningarinnar og kynnumst sögunum á bak við það sem fyrir augu ber. Safnkennari Þjóðminjasafns Íslands tekur vel á móti ykkur. Leiðsögnin er hugsuð fyrir fróðleiksfús börn í fylgd með fullorðnum.

Fjöldatakmörk í leiðsögnina miðast við 20 manns. Fjöldatakmörkun og nálægðarmörk eiga ekki við um börn sem fædd eru 2005 eða síðar. 

Aðgöngumiði í safnið gildir. Ókeypis fyrir handhafa árskorts og ókeypis fyrir börn yngri en 18 ára. Árskort kostar 2.000 kr. og gildir á allar sýningar og viðburði á Þjóðminjasafninu við Suðurgötu og í Safnahúsinu við Hverfisgötu.