Viðburðir framundan

Leiðsögn: Pike Ward og ljósmyndun hans

  • 17.11.2019, 14:00 - 14:45, Myndasalur - Þjóðminjasafnið Suðurgötu

Þann 17. nóvember kl. 14 leiðir Ívar Brynjólfsson, ljósmyndari í Þjóðminjasafni gesti um sýninguna: Með Ísland í farteskinu. Ljósmyndir, úrklippur og munir úr fórum Pike Ward.

Englendingurinn Pike Ward var kunnur maður á Íslandi um aldamótin 1900. Hann gerði út frá Hafnarfirði en ferðaðist einnig um landið og keypti fisk til útflutnings. Hann kenndi Íslendingum að nýta minni fisk og staðgreiddi með peningum sem var nýlunda hér á landi.

Ward var áhugaljósmyndari og tók myndir af daglegu lífi og fáförnum slóðum áður en Íslendingar hófu að taka myndir af áhugamennsku. Í því felst sérstaða mynda hans. Heildarsafn ljósmynda Ward frá Íslandi, bæði í úrklippubókunum, albúmi og lausum stereoskópmyndum telur rúmlega 1500 myndir. Langdvalir Ward hér á landi leiddu til þess að hann hóf að safna margvíslegum gripum sem voru einkennandi fyrir Ísland. Alls eru nú 379 gripir úr hans eigu í vörslu safnsins. Úrval ljósmynda, úrklippa og gripa úr fórum Pike Ward er nú sýnt í Myndasal Þjóðminjasafnsins. 

Á Vegg er sýningin Lygasögur, kvikmyndaverk eftir Chris Paul Daniels. Lygasögur er heitið á dagbók Pike Ward, ensks fiskkaupmanns sem í upphafi 20. aldar var nefndur ”frægasti maður Íslands”, en féll í gleymsku skömmu síðar.

Aðgöngumiði í safnið gildir. Verið öll velkomin.