Leiðsögn: Saga úr jörðu. Hofstaðir í Mývatnssveit
Sunnudaginn 20. september kl. 14 leiðir Hrönn Konráðsdóttir fornleifafræðingur og verkefnastjóri sýningarinnar Saga úr jörðu. Hofstaðir í Mývatnssveit, gesti um sýninguna.
Á Hofstöðum í Mývatnssveit er merkileg minjaheild sem spannar allt frá víkingaöld fram til okkar daga. Þar hafa farið fram fornleifarannsóknir, þær fyrstu í byrjun 20. aldar en viðamestar hafa þær verið seinustu þrjá áratugi. Grafinn var upp gríðarstór veisluskáli frá víkingaöld sem er eitt stærsta mannvirki sem rannsakað hefur verið á Íslandi. Þá var grafinn upp kirkjugarður á Hofstöðum sem í hvíldu einstaklingar sem tengdir voru fjölskylduböndum. Beinin veita áhugaverðar upplýsingar um líf og aðstæður fólksins.
Sýningin Saga úr jörðu. Hofstaðir í Mývatnssveit er unnin í samstarfi við Fornleifastofnun Íslands.
Aðgöngumiði í safnið gildir. Ókeypis fyrir handhafa árskorts og ókeypis fyrir börn að 18 ára aldri. Árskort kostar 2.000 kr. og gildir á allar sýningar og viðburði á Þjóðminjasafninu við Suðurgötu og í Safnahúsinu við Hverfisgötu.
Við biðjum gesti að virða þær sóttvarnareglur sem eru í gildi.