Viðburðir framundan

FRESTAÐ.Listasmiðja fyrir fjölskyldur, fuglar og aðrar náttúruminjar

  • 15.3.2020, 14:00 - 16:00, Safnahúsið við Hverfisgötu

Þjóðminjasafn Íslands hefur ákveðið að fresta viðburðinum Listasmiðja fyrir fjölskyldur, fuglar og aðrar náttúruminjar um óákveðinn tíma vegna samkomubanns og útbreiðslu á COVID-19. Við munum auglýsa viðburðinn síðar í samvinnu við Náttúruminjasafn Íslands.

 

Sunnudaginn 15. mars kl. 14–16 munu Kristín Harðardóttir og Þóra Björg Andrésdóttir, sérfræðingar frá Náttúruminjasafni Íslands, bjóða upp á fræðslu og föndur í tengslum við náttúru Íslands á sýningunni Sjónarhorn í Safnahúsinu.

Stutt leiðsögn verður um náttúruminjar sýningarinnar kl. 14 og 15 og í listasmiðju gefst börnunum tækifæri að vinna eigin fugl eftir fyrirmynd og vinna með hann á pappír.

Aðgöngumiði í safnið gildir. Ókeypis fyrir handhafa árskorts og frítt fyrir börn 17 ára og yngri.

Árskort kostar 2.000 kr. og gildir á allar sýningar og viðburði á Þjóðminjasafninu við Suðurgötu og í Safnahúsinu við Hverfisgötu.