Viðburðir framundan

Málþing til heiðurs Þóru Kristjánsdóttur, listfræðingi

  • 23.1.2021, 13:00 - 15:00, Fyrirlestrasalur Þjóðminjasafns Íslands

Listfræðafélag Íslands og Þjóðminjasafn Íslands standa fyrir málþingi til heiðurs Þóru Kristjánssdóttur, listfræðingi. Málþingið er haldið í fyrirlestrarsal safnsins við Suðurgötu á afmælisdegi Þóru laugardaginn 23. janúar klukkan 13:00 – 15:00. Þóra Kristjánsdóttir var valin fyrsti heiðursfélagi Listfræðafélags Íslands árið 2020.

Málþingið fer fram í gegnum fundarkerfi teams , en hægt er að taka þátt og hlusta á fyrirlestra með því að smella á meðfylgjandi krækju , sem líka er aðgengileg á Facebook síðu Listfræðafélags Íslands og Þjóðminjasafnsins. Aðgangur að streyminu er ókeypis, en gestir eru beðnir um að stilla hljóðnema sína á hljóðlaust. 

Dagskrá:

  •  Margrét Elísabet Ólafsdóttir, formaður Listfræðafélagsins, kynnir Þóru Kristjánsdóttur og dagskrá málþingsins
  • Margrét Hallgrímsdóttir, þjóðminjavörður, flytur ávarp.
  • Lilja Árnadóttir, fyrrverandi sviðsstjóri munasafns Þjóðminjasafnsins, segir frá samstarfi þeirra Þóru.
  • Arndís Árnadóttir, hönnunarsagnfræðingur, og Guðrún Tryggvadóttir, myndlistarmaður, segja frá tilurð bókarinnar Lífsverk. Þrettán kirkjur Ámunda Jónssonar
  • Eyrún Óskarsdóttir listfræðingur fjallar um myndmál á miðöldum.

Þóra Kristjánsdóttir lauk Fil.kand.-prófi í lista- og menningarsögu frá Stokkhólmsháskóla 1971 og MA-prófi í sagnfræði við HÍ 1999.

Þóra var starfsmaður Listasafns Íslands 1965-67, fréttamaður RÚV 1968-74, listráðunautur Norræna hússins 1974-79, listráðunautur Kjarvalsstaða 1979-86 og sérfræðingur hjá Þjóðminjasafni Íslands 1987-2010. Hún sat í ýmsum stjórnum s.s. Listahátíðar í Reykjavík, kirkjulistanefndar Þjóðkirkjunnar og Listvinafélagi Hallgrímskirkju. Hún kom að uppsetningu fjölmargra myndlistasýninga og sinnti fjölda annarra trúnaðarstarfa í tengslum við starf sitt og menntun.

Þóra ritaði greinar í ýmis bindi ritraðarinnar Kirkjur Íslands, m.a. um kirkjugripi, en ritröðin var samstarfsverkefni Þjóðminjasafnsins, húsafriðunarnefndar og biskupsstofu. Hún hefur skrifað fjölda greina og gert útvarps- og sjónvarpsþætti um listir og listamenn á Íslandi. Tímamótaverk Þóru er bókin Mynd á þili, íslenskir myndlistarmenn á 16., 17. og 18. öld. Bókin er jafnframt meðal grundvallarrita Þjóðminjasafnsins og kom út í tengslum við samnefnda sýningu í Bogasal safnsins árið 2005.

Þóra var sæmd Hinni íslensku fálkaorðu 2006.

Hlekkur á viðburð.

Bókin Mynd á þili fæst í safn- og vefverslun Þjóðminjasafns Íslands.