Viðburðir framundan

Pólland: Vor, síðasti fyrirlesturinn af fjórum

  • 15.3.2025, 10:30 - 11:30, Fyrirlestrasalur Þjóðminjasafns Íslands

Laugardaginn 15. mars er komið að fjórða og síðasta erindinu í fyrirlestraröðinni Pólland: Vetur, sumar, vor og haust. Erindið er helgað vorinu, náttúrufegurð árstíðarskiptanna og menningarviðburðum. 

Í vetur kynnir Mariola Alicja Fiema, kennari í pólsku og pólskum fræðum við Háskóla Íslands, Pólland fyrir fólki sem er á höttunum eftir nýjum og áhugaverðum áfangastöðum.  

Erindið í mars er það síðasta í fyrirlestraröðinni og er helgað vorinu, sérstaklega páskahátíðinni sem er ein þeirra fjölmörgu hátíða sem Pólverjar fagna á sinn einstaka hátt og gera páskahefðum hátt undir höfði. Vorin eru einstök í Póllandi. Borgirnar lifna við, hrista af sér vetrardrungann og göturnar fyllast af lífi og uppákomum. Náttúran skartar sínu fegursta, fjölbreyttir litir prýða skóglendi og akra og loftið fyllist af ilmi og fuglasöng og mun Mariola kynna staði sem vinsælir til fuglaskoðunar.

Einnig verða matarhefðir kynntar - sem gætu komið mörgum á óvart. 

Feb6225_Swolowo_KK_HR-1024x683

Febpisanki

Í vetur hefur Mariola Alicja Fiema, kennari í pólsku og pólskum fræðum við Háskóla Íslands, kynnt Pólland fyrir fólki sem er á höttunum eftir nýjum og áhugaverðum áfangastöðum. Þjóðminjasafn Ísland hefur leitast við að bjóða hina fjölmörgu Íslendinga sem eiga rætur í Póllandi velkomið á safnið, svo sem með leiðsögn á pólsku fyrir börn og fullorðna og Þjóðháttasafnið hefur nú opna spurningaskrá um reynslu þeirra af Íslandi.

En hversu vel þekkjum við Pólland?
Borgarferðir héðan til Póllands verða vinsælli með hverju árinu, enda eru pólskar borgir þekktar fyrir skemmtilegt mannlíf og fjölbreytt menningarlíf, þar eru söguleg kennileiti á nánast hverju götuhorni, söfn og gallerí.

Í fyrirlestrunum, eða öllu heldur „óformlegu erindunum“ eins og Mariola kallar þá mun hún kynna Pólland sem áfangastað fyrir náttúrunnendur, útivistar- og fjölskyldufólk, veita innsýn í ríka menningarsögu landsins, náttúrufegurð og fjölbreytileika.

Í Póllandi er rík hefð er fyrir hátíðarhöldum, svo sem í kringum jól, sem draga að erlenda gesti ekki síður en heimamenn. Vetrarfegurðin heillar skíðafólk hvaðanæva úr heiminum og sandstrendur Eystrasaltsins sólarunnendur. Hlýir litir skóganna umlykja göngufólk að hausti og hjólreiðafólk nýtur útivistar í blómstrandi aldingörðum að vori.

Tilvalið tækifæri til að kynnast pólskri menningu.

Frítt er inn á viðburðinn. Erindið er flutt á ensku.

 

Fyrirlestrarnir eru fjórir alls, og er hver tileinkaður einni árstíð:

Pólland: Sumar, 21. september 2024, kl. 10:30
Pólland: Haust, 23. nóvember 2024, kl. 10:30
Pólland: Vetur, 18. janúar 2025, kl. 10:30
Pólland: Vor, 15. mars 2025, kl. 10:30

Mariola-Alicja-Fiema_Kristinn-Ingvarsson_

Mariola Alicja Fiema. Mynd: Kristinn Ingvarsson

Fyrirlestraröðin er samstarfsverkefni Tungumálamiðstöðvar Háskóla Íslands og Þjóðminjasafnsins.

Haskoli-Islands_