Viðburðir framundan

Sérfræðileiðsögn um sýninguna Óravíddir í Safnahúsinu

  • 10.11.2019, 14:00 - 14:45, Safnahúsið við Hverfisgötu

Eva María Jónsdóttir, kynningarstjóri Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum, tekur á móti gestum og gefur innsýn í verk tengd handritaarfinum á sýningunni Sjónarhorn.

Þá verður skoðuð sýningin Óravíddir − orðaforðinn í nýju ljósi undir leiðsögn Jóns Hilmars Jónssonar prófessors emerítuss og höfundar Íslensks orðanets.