Viðburðir framundan

Leirsmiðja fyrir börn

Leirinn og íslensku fjöllin

  • 19.1.2020, 14:00 - 16:00, Safnahúsið við Hverfisgötu

Leirum okkar eigið landslag og mótum íslensk fjöll. Á sýningunni Sjónarhorn má sjá röð 10 málverka frá 100 ára tímabili sem sýna fjöllin sem umkringja Reykjavík. Allt frá Akrafjalli, Skarðsheiði, Esju og að Skálafelli. Í leirsmiðjunni ætlum við að fá innblástur frá verkunum ásamt því að horfa út um þakgluggann á efstu hæð Safnahússins og virða fjöllin fyrir okkur áður en við hefjumst handa við að móta landslagið úr leir.

Umsjón: Guðrún J. Halldórsdóttir er menntuð í leirmótun frá Myndlistaskólanum í Reykjavík og með meistaragráðu í listkennslu frá Listaháskóla Íslands. Guðrún hefur bæði kennt og haldið listasmiðjur í Myndlistaskólanum í Reykjavík, grunnskólum , framhaldsskólum og á listasöfnum. Í dag starfar hún sem verkefnastjóri viðburða og fræðslu hjá Listasafni Íslands.

Aðgöngumiði gildir. Frítt fyrir börn 17 ára og yngri.
Aðgöngumiði í Safnahúsið kostar 2000 kr. og gildir sem árskort. Árskortið gildir einnig á Þjóðminjasafn Íslands. Kortið veitir aðgang að öllum sýningum og viðburðum á vegum safnsins í Þjóðminjasafninu við Suðurgötu og Safnahúsinu við Hverfisgötu.