Viðburðir framundan

Stonewall uppreisnin

  • 9.8.2019, 12:00 - 13:00, Fyrirlestrasalur Þjóðminjasafns Íslands

Árið 2019 er sögulegt ár í réttindabaráttu hinsegin fólks þar sem 50 ár eru liðin frá Stonewall uppreisninni sem gjarnan er talin marka upphaf réttindabaráttunnar. Hér verður farið yfir söguna og þýðingu hennar í nútíma samhengi. Viðburðurinn fer fram á ensku.

Fræðsluviðburðir á Hinsegin dögum 2019 eru haldnir í samstarfi við Þjóðminjasafn Íslands. Á Þjóðminjasafninu má finna Regnbogaþráðinn sem er hinsegin vegvísir um sýninguna Þjóð verður til – menning og samfélag í 1200 ár. Í vegvísinum er fjallað um hinsegin sögu á Íslandi með það að markmiði að miðla upplýsingum um hinsegin líf og tilveru, sýna hvernig hugmyndir um kyn og kynhneigð taka á sig ýmsar myndir á ólíkum tímum og ekki síst að spyrja spurninga, skoða hið ósagða og hvetja gesti til gagnrýninnar hugsunar.

Frítt er á viðburðinn. Verið öll velkomin.

Þjóðminjasafn Íslands býður gestum á viðburðum Hinsegin daga á safninu aðgangsmiða á safnið með 25% afslætti eða á 1.500 kr. í stað 2.000 kr.