Viðburðir framundan

Sýningaopnun: Í skugganum og Nicoline Weywadt

  • 21.5.2022, 14:00, Myndasalur - Þjóðminjasafnið Suðurgötu

Konur í hópi frumkvöðla á sviði ljósmyndunar eru í forgrunni sýningar sem opnar í ljósmyndasal Þjóðminjasafns Íslands þann 21. maí kl. 14. Sýningin Í skugganum varpar ljósi á tíu konur sem lögðu stund á ljósmyndun í Danmörku, Íslandi og Færeyjum á síðari hluta 19. aldar. Í Ljósmyndasalnum verður einnig sérsýning á verkum fyrsta íslenska kvenljósmyndarans, Nicoline WeywadtVerið öll velkomin. 

Í skugganum

Konur meðal frumkvöðla í ljósmyndun

21.5.2022 - 4.9.2022, Myndasalur - Þjóðminjasafnið Suðurgötu

Konur í hópi frumkvöðla á sviði ljósmyndunar eru í forgrunni sýningar sem opnar í ljósmyndasal Þjóðminjasafns Íslands þann 21. maí. Sýningin Í skugganum varpar ljósi á tíu konur sem lögðu stund á ljósmyndun í Danmörku, Íslandi og Færeyjum á síðari hluta 19. aldar.

Yfirskrift sýningarinnar vísar til þess að konurnar stunduðu ljósmyndun í skugganum í tvenns konar skilningi. Þær stóðu bak við myndavélina og utan sviðsljóssins en líka í skugga karlkyns ljósmyndara síns samtíma. Stundum voru verk þeirra jafnvel eignuð eiginmönnum þeirra.

Á sýningunni stíga þessar konur út úr skugganum og taka sér rými í sögu ljósmyndunar. Sýningin varpar ljósi á þau áhrif sem kvenljósmyndarar höfðu á þróun listgreinar og þær aðstæður sem þær unnu við í Danmörku, Íslandi, Færeyjum, Ameríku og dönsku Vestur-Indíum.

Þessar konur voru um margt afar mikilsvirkir skrásetjarar síns samtíma. Þær tóku ekki aðeins portrettmyndir heldur skrásettu í myndum sínum fólk af mismunandi stigum, atvinnuhætti, heimilishald, náttúru, jafn sem lífið í sveit og borg.

Sýningin var upprunalega sett upp í Museum Østjytland í Randers á Jótlandi undir titlinum I skyggen – De første kvindelige fotografer í apríl 2021.

Nicoline Weywadt

21.5.2022 - 4.9.2022, Veggur - Þjóðminjasafnið Suðurgötu

Í tengslum við farandsýninguna Í skugganum opnar sérsýning á verkum fyrsta íslenska kvenljósmyndarans, Nicoline Weywadt, á Veggnum á 1. hæð Þjóðminjasafns Íslands. Á sýningunni eru nokkrar ljósmyndir hennar auk teikningar af ljósmyndastúdíóinu sem hún lét byggja á Teigarhorni.

Nicoline Weywadt lærði ljósmyndun veturinn 1871-72 í Kaupmannahöfn. Hún bjó alla tíð á Austurlandi, fyrst á Djúpavogi en síðar að Teigarhorni. Nicoline myndaði fyrst og fremst fólk en eftir hana eru einnig útimyndir frá Djúpavogi, Eskifirði og Seyðisfirði sem sýna upphaf þéttbýlismyndunar á þessum stöðum. Ljósmyndasafn hennar er einstæð heimild um Austfirðinga og Austurland á seinni hluta 19. aldar.

Safn Nicoline er varðveitt í Ljósmyndasafni Íslands á Þjóðminjasafni auk ljósmyndabúnaðar hennar s.s. myndavélar, hnakkajárns og baktjalds sem allt er til sýnis á grunnsýningu Þjóðminjasafnsins.