Viðburðir framundan
  • HP-3780

Þorraleiðsögn

  • 9.2.2025, 14:00 - 14:45, Þjóðminjasafnið á Suðurgötu

Sunnudaginn 9. febrúar kl. 14 verður boðið upp á Þorraleiðsögn í Þjóðminjasafninu. 

Þorrinn hefst á föstudegi í 13. viku vetrar sem ber upp í síðari hluta janúar (19.–26. jan.) og lýkur á laugardegi í þegar Góa tekur við. Fyrsti dagur þorra er auðvitað Bóndadagur og síðasti dagur þorrans nefnist þorraþræll. 

Mánaðarheitið þorri kemur fyrir í rímnahandriti frá lokum 12. aldar og i Snorra-Eddu. 

Skúli Matthías Ómarsson sagnfræðingur tekur á móti gestum og gengur með þeim um grunnsýningu safnsins Þjóð verður til – menning og samfélag í 1200 ár og staldrar við ýmsa gripi sem tengja má þorranum og tengir mánuðinn og það sem honum tilheyrir við Íslandssöguna. Hvenær var farið að halda Þorrablót? Því þarf að þreyja þorrann og góuna - og hvaðan kemur orðið þorri?

Miði í safnið kostar 3.000 kr. og gildir í 12 mánuði frá kaupum á alla viðburði og sýningar. 

Við hlökkum til að sjá ykkur.