COVID-19

Nýjar sóttvarnarreglur – 500 manna fjöldatakmarkanir

20.9.2021

Frá og með 15. september, mega söfn taka á móti leyfðum hámarksfjölda gesta miðað við samkomutakmarkanir, sem eru nú 500 manns í hverju rými. Gæta þarf að 1 metra fjarlægðarreglu og ef ekki er hægt að tryggja hana, þarf að nota grímur.

Takmarkanirnar gilda til 6. október næstkomandi.

  • Söfn mega taka á móti leyfilegum hámarksfjölda gesta en þó ekki fleiri en 500 í hvert rými, ef húsrúm leyfir.
  • Nálægðartakmörkun verður almennt óbreytt 1 metri (nema á sitjandi viðburðum og á skólaskemmtunum). Ef ekki er unnt að tryggja 1 metra nálægðartakmörkun, skal nota andlitsgrímur.
  • Grímuskylda verður að mestu óbreytt, þ.e. hafa þarf grímu innandyra þegar ekki er unnt að viðhafa 1 metra fjarlægð.
  • Fjöldatakmörkun tekur ekki til barna sem fædd eru 2016 og síðar.
  • Nálægðartakmörkun og grímuskylda á ekki við börn sem fædd eru 2006 og síðar.
  • Á viðburðum safnsins, svo sem á opnunum, er heimilt að bjóða uppá veitingar með þeim skilyrðum að það verður skrá gesti líkt og á veitingastöðum, í samræmi við ákvæði reglugerðar. Ef ekki er unnt að tryggja 1 metra nálægðartakmörkun, skal nota andlitsgrímur.
  • Við alla innganga skal tryggja aðgang að sótthreinsandi vökva fyrir hendur og eins víða um rými og talin er þörf á.

Hraðprófsviðburðir

  • Hámarksfjöldi á hraðprófsviðburðum verður 1.500 manns
    • Hraðprófsviðburðir geta verið standandi með 1 metra reglu (gríma ef 1 metra verður ekki viðkomið)
    • Séu þeir sitjandi þarf ekki að viðhafa 1 metra og ekki hafa grímu.
    • Áfram verður skylt að halda skrá yfir gesti en ekki skrá í sæti.

Tengill á reglugerðina er hér

Frétt af vef stjórnarráðsins hér