COVID-19

Reglugerð vegna Covid-19 frá 12. febrúar til 25. febrúar 2022

21.2.2022

Hámarksfjöldi í söfnum nú 200 manns í hverju sóttvarnarými að hámarki 500 manns.

Í söfnum gilda eftirfarandi takmarkanir

  • Almennar fjöldatakmarkanir eru 200 manns í hverju hólfi. Athugið að safnaráð fékk undanþágu frá reglugerð nr. 177/2022 frá heilbrigðisráðuneytinu dagsetta 11. febrúar fyrir hönd safna á landinu, þannig að fyrri hámarkstakmarkanir gilda, 500 manns með ákveðnum skilyrðum.
  • Fyrir hverja 10 m² umfram 100 m² má bæta við fimm viðskiptavinum að hámarki 500 manns.
  • Eins metra fjarlægðarregla er í gildi.
  • Ef ekki er hægt að viðhalda eins metra fjarlægðarreglu, þá skal nota andlitsgrímu. Grímuskylda á ekki við um börn fædd 2006 eða síðar.

Almennar reglur eru:

  • Almennar fjöldatakmarkanir eru 200 manns.
  • Fjarlægðarregla er 1 metri.

Söfn þurfa einnig að:

  • Tryggja aðgang að handsótthreinsi fyrir almenning og starfsmenn við innganga og í grennd við yfirborð sem margir snerta s.s. snertiskjái og afgreiðslukassa.
  • Sinna þrifum og sótthreinsun yfirborða sem margir snerta eins oft og unnt er.
  • Minna almenning og starfsmenn á einstaklingssóttvarnir með merkingum og skiltum

Ný reglugerð (athugið að safnaráð, f.h. safna, fékk undanþágu frá heilbrigðisráðuneytingu frá reglugerðinni).