Listi yfir hús í safninu

Saurbæjarkirkja í Eyjafirði

Saurbæjarkirkja er stærst þeirra fáu torfkirkna sem varðveist hafa á landinu. Hún var reist árið 1858 af timburmeistaranum Ólafi Briem (1808-59), sem lærði trésmíði í Kaupmannahöfn á árunum 1825-1831. Ólafur var mikilvirkur forsmiður í Eyjafirði um sína daga og er hann einnig höfundur Hólakirkju í Eyjafirði og Gilsstofu sem nú stendur við Glaumbæ í Skagafirði.

Í dyraumbúnaði Saurbæjarkirkju gætir áhrifa úr klassískum byggingarstíl sem Ólafur timburmeistari hefur kynnst í Danmörku. Klukkur hanga í gálgum á vesturstafni. Grind kirkjunnar er af bindingsverki sem timburþil er fest innan á. Þilið sjálft er standþil með fornlegri ásýnd, þar sem þilborð eru grópuð inn í önnur, mjórri og þykkari, en á þessum tíma voru spjaldaþil orðin algeng í kirkjum. Þau eru hins vegar gerð úr láréttum syllum og lóðréttum stöfum, er mynda reiti, sem spjöld eru felld í. Lágt þil með pílárum skilur kór frá framkirkju. Bekkur er meðfram veggjum í kór og bekkir með einföldum bríkum eru í allri framkirkjunni.

Saurbæjarkirkja hefur verið í vörslu Þjóðminjasafnsins frá árinu 1962 en skömmu áður fóru fram miklar viðgerðir að forsögn þjóðminjavarðar. Kirkjan er notuð sem sóknarkirkja.  Í Sólgarði, í næsta nágrenni Saurbæjar, er Smámunasafn Sverris Hermannssonar smiðs frá Akureyri.

Byggingarlýsingu Guðmundar L. Hafsteinssonar er að finna hér.